RSS er nokkurskonar áskriftarleið að vefsíðum. Með einföldum hætti er hægt að fá nýjustu færslurnar sendar til sín á einn stað og þannig gert það auðveldara að fylgjast með ákveðnum síðum eða efnisflokkum. Á flestum síðum er nú að finna RSS hnapp sem leiðir notendur í gegnum áskriftarferlið.
Hvernig nota ég þá RSS?
Okkur hefur reynst best að nota RSS lesara á vefnum, þannig er hægt að nálgast efnið hvar og hvenær sem er og stuðningur milli annara miðla er meiri og betri. Á Grænlandi notum við mest Google Reader en höfum einnig góða reynslu af Bloglines. Allir nýjustu vafrar eins og Internet Explorer, Mozilla Firefox, Chrome, Safari ofl. koma einnig með innbyggðum lesurum.
Eftir að notandi er búinn að skrá sig fyrir þjónustu er einfaldlega smellt á appelsínugula ferhyrninginn sem er víða að finna á vefsíðum. Þá er yfirleitt annað hvort boðið uppá að nota lesara eða einfaldlega hægt að haka við áskrift í vafranum.
Á Grænlandi er appelsínugula áskriftarhnappinn að finna efst í hægra horninu eða efst í valmyndinni á hægri spássíðu. Áskriftarslóðina má einnig finna hér: Grænland RSS
Í stað þess að fara svo inn á vef Grænlands reglulega opnar notandinn sinn RSS lesara og sér þá strax allar nýjar færslur á sínum uppáhálds vefsvæðum.
CommonCraft bjó til frábæra kynningu á RSS:
Google Reader fékk CommonCraft til að útbúa kynningu fyrir sig: