Ég hef lítið tekið eftir hækkandi olíuverði enda hjóla ég flestar mínar ferðir. Ótrúlegt að ekki fleiri hjóla til vinnu, það er ótrúlega hressandi og skemmtilegt. Ég hjóla í gegnum Laugardalinn á hverjum morgni við fuglasöng og ilminn af trjánum.
Nei annars, auðvitað tek ég eftir eldsneytishækkunum, bensínlíterinn er kominn upp í 162 kr/l og dísel í 178 kr/l. Það kostar 10.000 kr að fylla bílinn minn!
Hér eru nokkrar slóðir fyrir þá sem eru að spá í að byrja að hjóla:
http://www.yehudamoon.com/ - Til að létta manni lundin
http://mortenl.blog.is/blog/mortenl/ - Morten Lange, talsmaður Landssambands Hjólreiðamanna
http://lhm.blog.is/blog/lhm/ - Blogg Landssamtaka hjólreiðamanna
http://kari-hardarson.blog.is/blog/kari-hardarson/ - Kári Harðarson, duglegur hjólreiðaþenkjandi bloggari