Loksins er Góði hirðirinn farinn að selja fullorðinshjól. Hingað til hafa flest hjól verið send til Afríku eða einfaldlega pressuð. Núna eru nokkur í Góða hirðinum, flest hjólin eru alveg topp eintök þó svo að aðeins á sjái. Á myndinni er t.d. Mongoose IBOC comp sem var á sínum tíma alveg meiriháttar hjól. Þetta hjól er með rándýrum brettum og bögglaberum og í toppstandi. Það þarf bara aðeins að lappa upp á það með nýjum pedölum, hnakki og smá umhyggju. Allt þetta á aðeins 3.000 kr,-
Þetta er líklega einn bestiu kreppudíll vikunnar. Ódýrt hjól með sál og tugþúsundasparnaður í rekstri á bifreið.
Minni annars ökumenn á að reyna að halda sig við naglalaus vetrardekk, nóg er úrvalið af frábærum vetrardekkjum. Bendi á síðu Reykjavíkurborgar Ryklaus Reykjavík