Ég er búinn að þrjóskast við að setja nagladekkin undir hjólið í haust þar til í dag þegar ég flaug á hausinn. Dekkin fara undir í kvöld.
Hjólreiðar að vetri til eru frábærar, það er ótrúlegt að fást aðeins við náttúruöflin í nokkrar mínútur kvölds og morgna. Á vel búnu hjóli er það ekki mikið mál og hægt að hjóla flesta daga ársins. Það er einnig sérstök upplifun að hjóla í myrkri útbúinn ljósum af nýjustu gerð sem lýsa hreint ótrúlega vel. Næturhjólreiðar eru orðnar að sporti víða um heim því þær veita allt aðra upplifun en hefðbundnar hjólreiðar.
Flestar hjólaverlsanir selja nagladekk á ágætis verði Örninn er með hin vinsælu Nokian dekk sem ég nota, Markið er einnig með nagladekk, Borgarhjól á Hverfisgötu og Hvellur á Smiðjuvegi selja einnig slík dekk. Einnig frétti ég að Hjólasprettur í Hafnarfirði seldi nagladekk á góðu verði.
Af þeim sem enn eru keyrandi þá hvet ég ykkur til að kaupa ónelgd dekk til að stuðla að minni vegskemmdum og minna svifryki. Mikið af góðum og umhverfisvænum dekkjum eru nú á markaðnum en Michelin, Nokian, Toyo og fleiri eru komin með góð naglalaus vetrar og heilsársdekk.
Fór í næturfjallahjólreiðar í gærkvöldi. Þvílík snilld, flaug á hausinn á sleipri rót en það var ágætt, er búinn að vera að bíða eftir því að detta í svolítinn tíma, gott að klára það bara.