Hjólað í vinnuna er í gangi þessa dagana og hefur aldrei gengið betur. Nærri 8.000 manns taka nú þátt. Veðrið hefur leikið við okkur sem hafa hjólað þótt fyrsta vikan hafi verið vindasöm.
Hér er stutt myndbrot af seinasta kaflanum á leiðinni minni, listahátíð í fullu gangi og tónlistarhúsið vakir yfir borginni sem minnisvarði um ógöngur okkar.