Skv. Morgunblaðinu í dag lagði Dofri Hermannsson fram tillögu í Borgarráði um fríhjól. Þetta yrðu notuð hjól sem ungmenni myndu gera upp og halda við og væru öllum aðgengileg að kostnaðarlausu.
Fjölmargar borgir eru að vinna að álíkum verkefnum en Kaupmannahöfn og París eru góð dæmi um slík verkefni. Flestar borgir hafa þó fallið frá því að nota gömul hjól og hafa látið sérsmíða hjól í verkefnið.
Hugmyndin er góð en framkvæmdin gæti verið snúin í Reykjavík sérstaklega vegna mikils viðhalds og skemmdarverka.