Átakinu Hjólað í vinnuna er nú lokið. Þetta tókst vonum framar þrátt fyrir erfiða byrjun. Við hjóluðum, eins og alltaf, flesta daga en mér telst til að við höfum hjólað alla daga nema tvo. Það er í takt við okkar hefðbundnu hjólreiðar.
Þetta er alveg frábært átak og skemmtilegt að sjá að útfærslur af þessu eru að spretta upp út um allan heim. Ég var svo heppinn að vera boðið í samráðsnefnd hjólað í vinnuna og fékk því að taka aðeins þátt í undirbúningnum. Hópurinn lagði mikla áherslu á að reyna að gera þetta skemmtilegra og sýnilegra, ein af þeim tilraunum fólst í kaffishúsatjöldum sem ég held að hafi heppnast vel. Ég er fullviss að næsta ár verði ennþá skemmtilegra.
Við héldum einnig uppi Facebook síðu átaksins sem fékk 850 fans og var mjög virk. Stefnum á að halda síðunni að einhverju leiti lifandi og byrja svo aftur af krafti að ári liðnu.
Takk fyrir frábærar vikur, sjáumst á hjólastígunum í sumar.