
By Naezmi @ Flickr
Nú er komið að undirbúningi í garðinum fyrir haustið. Við erum búin að eyða miklum tíma í sumar í okkar garð sem var kominn í mikla órækt. Við erum þó mjög heppin því garðurinn var mjög fallegur fyrir um 15 árum síðan og býr enn að því. Eitt af því skemmtilegasta við garðinn er að á vorinn fyllist garðurinn af páskaliljum og svo tekur hver tegundinn við af annari langt fram á sumar. Lykillinn af þessu eru haustlaukar. Núna eru tilboðsdagar í flestum blómabúðum. Við höfum keypt lauka bæði í Blómaval og Garðheimum. Garðheimar eru með skemmtilega síðu og námskeið þetta haustið. Einföld, ódýr og skemmtileg leið til að gera garðinn vistlegri og ótrúlega hollt fyrir sálina að sjá blóm koma upp snemma á vorin.