Sífellt fleiri fyrirtæki eru byrjuð að kynna grænar vörur, grænar þjónsutur og jafnvel farina ð fá vottun sem græn fyrirtæki. Með þessum fyrirtækjum spretta auðvitað önnur sem segjast vera græna, bjóða vörur sem látnar eru líta út fyrir að vera græn osfrv. Þetta kallast grænþvottur (e. greenwash). Mörg íslensk dæmi hafa sprottið upp nýlega um þetta athæfi. Græn áskrift DV lyktar ansi mikið af grænþvotti, þarna er verið að markaðsetja vöru græna þrátt fyrir að allt annað sem fyrirtækið geri hafi ekkert með umhverfisvernd að gera. Þarna er greinilega ekki nóg að segja netáskrift eða eitthvað í þeim dúr heldur græn áskrift gulrótin. Ætli umhverfisþenkjandi fólk falli fyrir þessu?
Endilega sendið okkur dæmi um íslenskan grænþvott hér í comments eða á graenland (hjá ) gmail.com