Áramótin 2007-2008 ákváð fjölskyldan að láta græn fyrirheit verða að veruleika. Okkur langaði ekki að breytast í hippa á einni nóttu heldur gera þetta á okkar hraða og sem eðlilegast. Við byrjuðum á því að selja annan fjölskyldubílinn en lentum strax í ákveðnum vandræðum með framhaldið. Hvernig er best að flokka sorpið, hvernig kemur maður sér upp flokkunarstöð, hvað gerir maður við lífræna úrganginn, hvaða sorptunnulausn er best, hvernig hættir maður að nota plastpoka, hvaða vörur eru skaðlegastar umhverfinu og hverjar eru betri? Hvernig er best að spara rafmagn og aðra orkugjafa? Hvaða bækur og vefsíður henta fyrir íslenskar aðstæður? Við fórum líka að huga betur að fuglunum í garðinum okkar. Strákurinn okkar er yfir sig hrifinn af fuglunum og veit ekkert skemmtilegra en að fara út og gefa þeim og fylgjast svo með þeim úr eldhúsglugganum.
Frí áskrift
Síður
-
Nýlegar færslur
Grænlenskt tíst- graenland: RT @MayorOfLondon: London ranked 11th greenest city in Europe - great news but we can do better - http://bit.ly/5KTliY 9. desember , 2009
- graenland: Hvernig væri að leggja klukkutíma í að afpanta alla reikninga á pappírsformi og spara þannig peninga og bæta umhverfið! 18. nóvember , 2009
- graenland: Spennandi hlutir að gerast í rafbílavæðingu Íslands, Silfur Egils: http://ow.ly/D2px og Reykjavík síðdegis: http://ow.ly/D2rM 17. nóvember , 2009
- graenland: Selja rafbíla hér á landi: http://mbl.is/1453583 13. nóvember , 2009
Vefský
bloglines endurvinnsla flokkun fuglafóðrarar fuglar google reader græn grænland grænn hjól hjólreiðar jarðgerðarkassi jólagjafir jólagjöf lambakjöt landvernd metan moltugerð nagladekk OR Orkuveitan orkuveita reykjavíkur plastpokar rafbílar rafmagnsbílar rafmagnsbíll reykjavík samgönguhjólreiðar samgöngumál smáfuglar Sorpa Sparnaðarráð sparnaður strætó umhverfismerki umhverfisvernd umhverfisvæn umhverfisvænar samgöngur umhverfisvænt umhverfisvænt heimili vefur visthópur vistvænar samgöngur vistvænn lífstíll íslandSarpur