Feeds:
Færslur
Ummæli

Fyrir nákvæmlega einu og hálfu ári síðan tókum við ákvörðun um að stökkbreyta lífi okkar og taka okkur taki í umhverfismálum. Síðan höfum við skrifað 100 færslur og breytt miklu í okkar daglega lífi. Við ætluðum okkur alltaf að breytast hægt en vel og lítum svo á að við séum enn í breytingarferli, margt er enn ógert en okkur hefur þó miðað vel áfram. Flokkunin gengur vel, sparnaður á orku og vatni er kominn til að vera, samgönguvenjur hafa breyst til muna, heimilisverkin hafa orðið umhverfisvænni, umbúðanotkun hefur minnkað, endurnýting hefur aukist og eins og við ætluðum okkur þá höfum við einnig virkjað garðinn okkar, nú fáum við mikinn fjölda fugla í heimsókn á hverjum morgni og eyðum eins miklum tíma og við getum úti í garði með syni okkar og erum markvisst að breyta honum í matarbúr fyrir okkur sjálf.

Það er gaman að lesa fyrstu færsluna sem var skrifuð 12.mars 2008:

“Við lítum á okkur sem umhverfisvæn, tölum töluvert um umhverfisvernd, erum á móti stóriðju osfrv. Samt höfðum við einhvernvegin aldrei látið verkin tala, við hálf skömmuðumst okkar fyrir að segjast vera umhverfisvæn en flokka svo ekki sorpið, eiga tvo bíla og hamstra plastpoka í matvörubúðunum. Við ákváðum því að taka okkur taki og reyna að gerast umhverfisvænni.
Við erum ósköp venjuleg fjölskylda, hjón með 1 árs strák og lítinn hund. Við vorum sammála um að fara hægt af stað, engar öfgar heldur láta þetta gerast náttúrulega og eðlilega. Við byrjuðum á því að selja annan fjölskyldubílinn, héðan í frá ætluðum við að nota sama bílinn, hjóla og prófa almenningssamgöngur. Það verður að segjast að það var mun þægilegra að eiga tvo bíla en hægt og rólega kemmst maður að því að með smá skipulagningu er ekkert mál að vera einbíla. Það hjálpar til að vera tilbúinn að hjóla og með aðstöðu til þess í vinnunni. Meira um það síðar.
Það kom þægilega á óvart hvað fjárhagur heimilisins varð léttari við að losna við annan bílinn.
Þessi fyrstu skref voru þó mun torveldari en við gerðum ráð fyrir, einna helst voru það praktísk atriði eins og hvernig er best að flokka, hugmyndir um flokkunarkerfi, hvað nota eigi í stað plastpoka osfrv. Í þessu ferli kviknaði sú hugmynd að blogga um þessa tilraun okkar og um leið að segja frá reynslu okkar. Við ætlum því að fjalla um hvernig við verðum umhverfisvænni, hvað við lærum í þessu ferli og hvað reynist okkur vel og hvað ekki.
Þetta er Grænland!”

Vonandi fylgist þið áfram með okkur og vonandi náum við að gera fólki auðveldara að skipta yfir í umhverfisvænni lífsstíl. Við erum alltaf opin fyrir spurningum, vinsamlegast notið “leave a comment” hnappinn hér að neðan.

Námskeið hjá Vistvernd í verki

Fréttatilkynning

Viltu gerast leiðbeinandi hjá Vistvernd í verki?

Nú er talað um að innleiða ný gildi. Vistvernd í verki svarar kalli tímans um breyttar áherslur með 15 tíma námskeiði fyrir leiðbeinendur dagana 18.-20. september nk.

Á námskeiðinu læra þátttakendur listina að leiðbeina. Farið verður í gegnum helstu verkefni leiðbeinandans, s.s. að stýra fundum, kveikja áhuga, vinna saman í hóp og miðla fróðleik um leiðir til sparnaðar og vistvænni lífsstíls. Námskeiðið veitir þeim sem áður hafa tekið þátt í visthópi réttindi til að leiðbeina á námskeiðum Vistverndar í verki. Námskeiðið er einnig upplagt til upprifjunar fyrir þá sem áður hafa tekið þátt.

Leiðbeinandi á námskeiðinu er Bryndís Þórisdóttir, fyrrverandi verkefnisstjóri Vistverndar í verki.

Tími:

  • 18. september kl. 13-18
  • 19. september kl. 10-15
  • 20. september kl. 10-15

Nokkur sveitarfélög styrkja fólk til þátttöku en námskeiðsgjald er kr. 25 000.

Vinsamlegast skráið þátttöku með tölvupósti fyrir miðvikudag 16. september. Netfang: vistvernd@landvernd.is Nánari upplýsingar hjá Sigrúnu í síma 552 5242 og www.landvernd.is

Vinsamlegast áframsendið á þá sem mögulega vilja vera með!

Vistvænar samgöngur í Kanada


British Columbia

Originally uploaded by singsing_sky

Íbúum Bresku Kólumbíu (British Columbia) í Kanada býðst nú frábær leið til að snúa til umhverfisvænnri samgangna. BC SCRAP-IT® er fyrirkomulag sem er sett af stað til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og bæta loftgæði með því að koma eldri og mengandi farartækjum af götunni.

Átakið felst í að greiða bíleigendum fyrir að láta eyða bílunum sínum í formi styrks til kaupa á vistvænni samgönguháttum. Styrkinn geta eigendur gamallra bifreiða notað til að kaupa bifreiðar sem falla undir lágmarskmengunarviðmið, hjól eða aðgang að almenningassamgöngum eða blöndu af fyrrtöldum þáttum. Styrkirnir eru frá $2.000CAD.

Grænni fyrirtæki – ÁTVR

ÁTVR er farið að nota bréfpoka og er fyrsta fyrirtæki á íslandi, sem ég veit til, til að losa sig við plastið. IKEA er farið að gera þetta erlendis, vonandi kemur sú hefð hingað heim.

p8280321

Skemmtileg blogg


IMG_1112

Originally uploaded by stephanschier

Við lesum alltaf töluvert mikið af bloggum sem tengjast umhverfisvernd og hjólreiðum. Eitt af mínum uppáhaldsbloggum þessa dagana er Bakfiets en Meer sem er hollenskt blogg á ensku um cargohjól, hjól sem geta borið vörur og eru notuð sem vinnuhjól. Sýnir manni möguleikana í vistvænum samgöngum hvort sem er vegna vinnu eða fjölskyldu.

Nokkur íslensk fyrirtæki eru farin að taka sig á í umhverfismálum og nýta það til að kynna sig. Kaffitár er eitt þessara fyrirtækja og gerir það með ágætum hætti.

p8270011

Obama, Ísland og rafmagnsbílar

By: Frankh

By: Frankh

Því miður hefur farið ótrúlega lítið fyrir umræðu um rafvæðingu íslenska bílaflotans. Það væri ein sú aðgerð sem án efa gæti sparað okkur hvað mestan gjaldeyri til langtíma séð og skapað jákvæðari afurðir fyrir auðlindir okkar. Með nýlegum aðgerðum bandarískra yfirvalda gegn efnahagshruninu er innifalin stór styrkur til þróunarvinnu í rafmagnsvæðingu bandarískra bíla. Vissulega snýr aðgerðin að miklu leiti til varnar bandaríska bílaiðnaðinum en um leið til að leita leiða að umhverfisvænnri lausna í samgöngum. Eins og áður hefur komið fram á þessu bloggi botnum við lítið í því af hverju við Íslendingar gerum ekki meira til að vera í fararbroddi í rafbílavæðingu í heiminum.

Hvernig væri t.d. að hætta við hugmyndir um hraðaksturssvæði og tilraunir fyrir kappakstur og tækninýjungar við erfið veðurskilyrði að aðlaga þær að þróun rafmagnsbíla og breyta hluta af Ásbrúarsvæðinu (Gamla varnarsvæðinu) í opna tilraunastöð fyrir rafmagnsbíla við vond veðurskilyrði.

Mynd: www.heidmork.is

Mynd: www.heidmork.is

Þetta sumar ferðuðumst við minna en venjulega. Margt kom til m.a. verðlag og hugmyndir okkar um umhverfisvænar samgöngur. Við nýttum okkur þess í stað mikið náttúruperlur í nágrenni Reykjavíkur. Heiðmörk

kom virkilega á óvart, frábært útivistarsvæði og hentar vel fyrir langa göngutúr, fjallahjólreiðar og síðast en ekki síst grillveislur. Það er ógrynni af fallegum stöðum rétt við og jafnvel innan bæjarmarka, gott dæmi um það er nýleg friðlýsinga í Garðabæ

.

Hvet alla til að nýta sér perlur Höfuðborgarsvæðisins, það eru fleiri staðir til en Esjan.

Hænur í garðinn

Mynd: www.omlet.co.uk

Mynd: www.omlet.co.uk

Í kreppuumræðunni undanfarna daga hafa margir tekið upp á því að rækta eigið grænmeti og setja niður kartöflur. Við höfum einnig heyrt um fólk sem hefur verið að spá í að fá sér hænur í garðinn. Okkur er búið að langa í hænur lengi, fátt er vinalegra en að hafa hænur spásserandi í garðinum. Íslensku landnámshænurnar eru mjög sjálfbærar og duglegar, þær borða gróður og skordýr í garðinum  auk matarleyfa og þurfa ekki mikið pláss. Vissulega þarf að smíða góðan kofa sem er vel einangraður og með ljósi og vatni en það ætti ekki að vefjast fyrir fólki. Hænsnarækt virðist vera komin í tísku í Ameríku. Auk fjölmargra heimasíða um hænsnarækt þá hafa sprottið upp skemmtileg fyrirtæki í tengslum við þetta einkennilkega og praktíska áhugamál.

Endilega látið okkur vita ef einhver er með hænur í bakgarðinum!

« Newer Posts - Older Posts »